viðvera utanríkisráðherra við umræðu um ÞSSÍ.
Virðulegi forseti. Samkvæmt nýjustu fréttum liggur fyrir að innan tíðar muni hæstv. utanríkisráðherra koma hingað í hús.
Ég velti fyrir mér hvort við gætum ekki verið svolítið skapandi í þeirri stöðu sem upp er komin og hæstv. forseti gerði hlé á fundinum og við mundum freista þess að setjast niður með formanni utanríkismálanefndar og reyna að finna einhvern efnislegan flöt á málinu.
Við eigum mörg ágæt dæmi um það og ekki síst á þessu kjörtímabili að vond mál koma til þingsins og er skemmst að minnast afturköllunar frumvarps þáverandi hæstv. umhverfisráðherra við náttúruverndarlög sem tókst undir forustu hv. þm. Höskuldar Þórs Þórhallssonar að beina í uppbyggilegan og góðan farveg. Þar reyndi á formann nefndar. Nú reynir á formann hv. utanríkismálanefndar, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, hvort hún er til í að beita hér (Forseti hringir.) skapandi pólitískri nálgun og þeirri nýlundu að hjálpa okkur að láta Alþingi halda haus gagnvart ráðherra sem neitar að eiga í samskiptum við þingið.