145. löggjafarþing — 40. fundur,  25. nóv. 2015.

breytingartillögur ríkisstjórnarinnar.

[15:36]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég hef undir höndum breytingartillögur ríkisstjórnarinnar sem eru ekki trúnaðargögn en þó ekki opinberar. Fjölmiðlar kalla eftir þessum gögnum. Má ég ljósrita þau og afhenda fjölmiðlum? (Gripið fram í: Svaraðu nú.)