145. löggjafarþing — 40. fundur,  25. nóv. 2015.

störf þingsins.

[15:41]
Horfa

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Á jafnréttisþingi í morgun kom fram að hlutfall kvenkyns viðmælenda í fjölmiðlum hefur sáralítið lagast síðastliðin 15 ár. Þar var farið yfir niðurstöður viðmælendagreiningar velferðarráðuneytisins og Fjölmiðlavaktarinnar. Meðal annars var birtur listi yfir helstu viðmælendur í þjóðmálaþáttum og er athyglisvert að rýna svolítið í þær niðurstöður því að það gefur okkur tækifæri til að skilja þjóðfélagsumræðuna og sjá hvað kemst þar á dagskrá.

Á þeim tíma sem skoðaður var voru til dæmis 12 karlar og ein kona í þættinum Í bítið á Bylgjunni. Sjö voru úr stjórnarliðinu en einn úr stjórnarandstöðu. Í Reykjavík síðdegis voru karlarnir 11 en konurnar tvær. Stjórnarliðar með sjö og stjórnarandstaðan þrjá, hvert úr sínum flokki.

Þegar skoðaður er fjöldi viðtala þar sem þessir 13 viðmælendur eru kemur í ljós að stjórnarliðar hafa fengið 151 viðtal en stjórnarandstaðan 43.

Jafnréttislögin eru skýr. Þar segir meðal annars í 24. gr., með leyfi forseta:

„Hvers kyns mismunun á grundvelli kyns, hvort heldur bein eða óbein, er óheimil.“

Fjölmiðlar eiga að vera hið svokallaða fjórða vald. Því ber þeim að gefa konum og körlum jöfn tækifæri til að tjá sig.

Það sem vekur líka athygli í könnuninni er að einungis ein kona úr stjórnarandstöðunni kemst á topplistann. Stjórnendur þátta sem fá mikla hlustun, til dæmis á Bylgjunni, eru allt karlar, sem þurfa nú að mínu mati að hysja upp um sig buxurnar og gera atlögu að því að fá fleiri konur til samtals. Það á líka við um Ríkisútvarpið því að þar eru hlutföllin líka ójöfn.

Í Morgunblaðinu í morgun kom fram að staðan er sambærileg og árið 2000 og við það getum við ekki unað. Eini fjölmiðillinn sem ég veit um sem stendur sig vel er Hringbraut. Hann stendur sig afar vel þegar kemur að jöfnum hlutföllum kvenna og karla sem viðmælendum. Mér skilst að þar hangi uppi á vegg yfirlit sem allir þáttastjórnendur þurfa að fylgjast með. Staðan þar núna er að viðmælendur eru 594 konur og 609 karlar. Jafnara getur það tæpast orðið.


Efnisorð er vísa í ræðuna