145. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2015.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Með bréfi, dagsettu 26. nóvember sl., hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslur Ríkisendurskoðunar um þjónustusamning ríkisins við Farice ehf. og um rekstur og fjárhagsstöðu Ábyrgðasjóðs launa.

Einnig hefur forseti með bréfi, dagsettu 26. nóvember, óskað eftir því, samanber ákvæði 5. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2014.