145. löggjafarþing — 44. fundur,  30. nóv. 2015.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

157. mál
[17:15]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Ég ítreka að við í allsherjarnefnd höfum kallað eftir því að mál komi frá ráðherrum til nefndarinnar og höfum frekar verið að hvetja til þess að þau komi fyrr þannig að nefndin geti farið yfir þau á vandaðan hátt. Það mun ekki standa á okkur í allsherjar- og menntamálanefnd að klára þetta mál þegar það kemur fyrir þingið.