145. löggjafarþing — 46. fundur,  3. des. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[11:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þetta andsvar. Hv. þingmaður bað mig um að koma með sér aftur í tímann og rifja upp ástandið sem var hér þegar vinstri stjórnin var við völd.

Það var nú bara þannig að farið var inn í grunnstoðir samfélagsins, þar skorið niður blóðugum niðurskurði, hvort sem það voru eldri borgarar, öryrkjar, heilbrigðiskerfið, vegakerfið eða menntakerfið, og svo lengi má telja. Svo er alltaf vísað til þess að hér hafi orðið fjármálahrun.

Í tíð síðustu ríkisstjórnar var ekki hikað við að færa fjármagn frá grunnstoðunum yfir til gæluverkefna. Nefni ég þar til dæmis rándýra ESB-umsókn. Nefni ég þar til dæmis rándýrar tilraunir til þess að breyta stjórnarskrá. (Gripið fram í.) Nefni ég þar stöðugan fjáraustur inn í gjaldþrota bankakerfi eins og til dæmis SpKef, Byr, Sjóvá, Saga Capital og hvað eina. Það veltur á tugum milljarða sem fór út um gluggann á síðasta kjörtímabili á meðan grunnstoðirnar voru skornar niður. Þetta er staðreyndin og það er mjög erfitt fyrir þessa sömu aðila að horfast í augu við það núna.

Hér eiga sér stað yfirboð, eins og í fjárlögum síðasta árs eftir að ég varð formaður fjárlaganefndar. Komið hefur skýrt fram hvað þessir hópar fá mikla hækkun og reiknað hefur verið upp til þess dags sem bæturnar verða útborgaðar með tilliti til afturvirkni. Þessir tveir hópar fá 9,7% nú um áramótin.

Virðulegi forseti. Ég er afar ánægð með að ríkisstjórnin gengur fram og bætir þessum hópum eins og öðrum þann forsendubrest sem varð í tíð vinstri stjórnarinnar. (Forseti hringir.) Nú er þessi hópur kominn í hóp þeirra sem fengið hafa launabætur.