145. löggjafarþing — 50. fundur,  9. des. 2015.

störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Fyrir rétt rúmu ári skipaði hæstv. heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson nýjan forstjóra yfir heilsugæsluna í Reykjavík. Mér er sagt að sá maður sé prýðismaður og ágætur læknir. Ekki veit ég hversu góður bisnessmaður hann er en hann hefur reynt að hasla sér völl á þeim vettvangi, bæði sem forstjóri í einkareknum heilbrigðisstofnunum í Svíþjóð og sem einn af stofnendum fyrirtækis sem vildi sérhæfa sig í ferðatengdri læknisþjónustu, Nordic Health Pro ehf., árið 2010. Fljótlega eftir að hann var skipaður í embætti fór hann að tala um mikilvægi þess að innleiða markaðslausnir í heilsugæsluna.

(Forseti (EKG): Forseti biður um hljóð í þingsalnum. Þó að hv. þingmaður sé raddsterkur þarf hann líka hljóð.)

Hann fór að tala um mikilvægi þess að innleiða markaðshvata í heilsugæsluna og að þar þyrfti Samkeppniseftirlitið að leika lykilhlutverk. Þarna var samræmt göngulag við hæstv. heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson sem í síðustu viku kom fram í ríkissjónvarpinu og hvíslaði því að þjóðinni að einmitt þetta vekti fyrir honum, að peningarnir fylgdu sjúklingnum. Þetta er formúla Miltons Friedmans og félaga um leiðina til að markaðsvæða heilbrigðiskerfið og menntakerfið. Þetta er ekki alveg nýtt af nálinni á Íslandi. Við þekkjum það til dæmis úr röntgenþjónustunni þar sem dregið var úr fjárveitingu til Landspítalans, hann gat ekki annað eftirspurn og peningarnir fylgdu sjúklingnum upp í Domus Medica sem brátt varð betur tækjum búið en Landspítalinn. Þetta er veruleikinn.

Núna fáum við það svart á hvítu á forsíðu Fréttablaðsins að sá aðili sem tjáir sig um framtíðarþróun í heilbrigðiskerfinu á Íslandi — hver skyldi það vera? Það er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Ég vil vekja athygli þjóðarinnar á einu, sá er munurinn á Framsóknarflokknum núna og í tíð fyrrum ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árabilinu 1995–2003 að þá hélt hann (Forseti hringir.) í við Sjálfstæðisflokkinn og passaði upp á hann. Siv Friðleifsdóttir, Jón Kristjánsson og Ingibjörg Pálmadóttir pössuðu upp á þetta. Núna er allt gefið eftir. Nú á að markaðsvæða. Ef Alþingi stoppar þetta ekki beini ég því til (Forseti hringir.) þjóðarinnar. Við verðum að rísa upp gegn áformum Sjálfstæðisflokksins um að innleiða markaðsviðskipti í heilbrigðisþjónustunni á Íslandi. Við eigum ekki að láta þau komast upp með (Forseti hringir.) að eyðileggja íslenska heilbrigðiskerfið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)


Efnisorð er vísa í ræðuna