145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[18:04]
Horfa

Forseti (Valgerður Gunnarsdóttir):

Forseti verður að fá að bregðast við þessum orðum, mun gæta þess að berja ekki mjög fast í bjölluna, en varðandi hið fyrra varð hv. þingmanni það á að ávarpa þingmann úti í salnum með 2. persónu fornafninu þú og beindi orðum sínum, ef ég man rétt, til hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur.