145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 465, um laun lögreglumanna, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 263, um rannsökuð mál hjá Samkeppniseftirlitinu, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.