145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[12:22]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Því er auðsvarað. Mér finnst það beinlínis andstyggilegt þegar látið er í veðri vaka að fólk sem hefur fengið metna örorku og er með örorkulífeyri sé ekki á vinnumarkaði vegna einhvers konar leti. Við sem eru svo heppin að hafa fullt starfsþrek ættum kannski að setja okkur í þau spor að það kunni að koma að því einhvern daginn að okkur þverri starfsþrek af einhverjum ástæðum, hvort sem það er af slysförum eða líkamlegum eða andlegum veikindum.

Nú er það svo að helstu orsakir örorku í dag eru geðrænn vandi og stoðkerfissjúkdómar. Þegar við horfum á hinn geðræna vanda þá er tvennt sem kemur til. Annars vegar búum við í samfélagi sem er mjög flókið og þar er mikið áreiti þannig að ef fólk, vegna einhverra áfalla eða veikleika, lendir í geðrænum vanda er samfélagið mjög erfitt hvað það varðar. Til okkar eru stöðugt gerðar flóknar kröfur og það er erfitt að takast á við það. Og á hinn bóginn er grundvallarþátturinn sá að ef þú átt við geðrænan vanda að stríða á Íslandi þá er ekkert mjög mikið af úrræðum eða framboði á þjónustu. Þú færð bráðaþjónustu á geðdeild og það er sannarlega til mikið af góðum sérfræðingum og verið að gera góða hluti. En það er ófullnægjandi, ekki síst fyrir börn. Við sem samfélag erum því ekki að vinna gegn því að fólk tapi endanlega starfsorku vegna geðrænna sjúkdóma, svo ég hef andstyggð á málflutningi sem þessum.