145. löggjafarþing — 55. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[00:55]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson er gjöfull maður. Hann talaði þannig til stjórnarmeirihlutans að hann hefði verið hér veitandi og upplýsandi við þessa umræðu. Ég skal taka undir það að einhverju leyti, en þó held ég nú þegar allt kemur til alls að það hafi verið okkar hlutskipti í stjórnarandstöðunni frekar en stjórnarmeirihlutans að veita fremur en að þiggja.