145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[18:37]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Ríkisstjórnin hefur þegar tryggt 60 millj. kr. til Ríkisútvarpsins. Stofnun sem hefur í þjónustu sinni tíu framkvæmdastjóra, yfir 200 manna starfslið, sem kostar 150 millj. kr. á ári, henni er ekki fjár vant. Ég segi nei.