145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[23:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vildi nú fara af mikilli hógværð í það að biðja hv. þingmenn um að veita hér næði og fór bara fram á það í fyrstu atrennu að það yrði gert eftir að hv. þingmenn hafa lokið máli sínu. Forseti vill því byrja á að árétta það og vita hvort hv. þingmenn geti ekki tekið saman svona eitt skref í einu í þeim efnum.