145. löggjafarþing — 57. fundur,  17. des. 2015.

happdrætti og talnagetraunir.

224. mál
[23:30]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um happdrætti og talnagetraunir, sem snýr að framlengingu starfsleyfis, og kemur frá hv. allsherjar- og menntamálanefnd.

Málinu var vísað til nefndar eftir 2. umr. og kallað til fundar. Á fund nefndarinnar komu Árni Múli Jónasson og Bryndís Snæbjörnsdóttir frá Þroskahjálp. Fram kom í máli þeirra að lög um happdrætti og talnagetraunir fela í sér ólögmæta og alvarlega mismunun hvað varðar möguleika þeirra til tekjuöflunar.

Nefndin áréttar að við vinnslu málsins í nefndinni kom fram að fyrirhugað er að skoða breytingar á umhverfi happdrættismála hér á landi. Í ljósi þeirra athugasemda sem nefndinni hafa borist telur hún mikilvægt að við undirbúning breytinganna verði haft víðtækt samráð við þá sem málið varðar.

Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þingmenn Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og framsögumaður nefndarálitsins sem ég mæli hér fyrir í fjarveru hv. þingmanns, Willum Þór Þórsson, Páll Jóhann Pálsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Svandís Svavarsdóttir.