145. löggjafarþing — 59. fundur,  19. des. 2015.

skattar og gjöld.

373. mál
[11:12]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Herra forseti. Eins og kunnugt er erum við hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir nánast að verða sama manneskjan og gæti ég hér endurtekið fyrirvara hennar nánast óbreyttan, þ.e. minn fyrirvari lýtur að 1. gr. sem snýst um rúmmálsregluna sem var gerð grein fyrir hér í umræðunni. Að öðru leyti styð ég þetta mál.