145. löggjafarþing — 59. fundur,  19. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:31]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það er aldrei of seint að skipta um skoðun. Þess vegna gefum við ríkisstjórninni enn og aftur tækifæri til að hækka laun aldraðra og öryrkja með sama hætti og annarra. Við munum flytja þá tillögu aftur og aftur þangað til við höfum náð því fram að aldraðir og öryrkjar njóti sömu launahækkana og aðrir í landinu. Þess vegna er þingmönnum best að segja já.

Ég segi já.