145. löggjafarþing — 59. fundur,  19. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:35]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég segi já við þessari tillögu. Hér birtist jólakveðja til aldraðra og öryrkja. Hún lítur svona út:

Gleðileg jól! Farsælt komandi ár. Þið hafið fengið nóg. Hátíðarkveðja, ríkisstjórn Íslands, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn.