145. löggjafarþing — 60. fundur,  19. des. 2015.

málefni aldraðra o.fl.

398. mál
[18:42]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Atkvæði greitt gegn þessu frumvarpi er fyrst og fremst atkvæði greitt gegn vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Vísa ég þar í málflutning og rökstuðning hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur og eigin orð hér fyrir fáeinum mínútum.