145. löggjafarþing — 63. fundur,  19. jan. 2016.

varamaður tekur þingsæti.

[13:45]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá hv. 3. þm. Norðvest., Ásmundi Einari Daðasyni, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson.

Sigurður Páll Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.