145. löggjafarþing — 64. fundur,  20. jan. 2016.

störf þingsins.

[15:04]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Rússlandsmarkaður hefur um áratugaskeið verið einn mikilvægasti markaður fyrir fiskafurðir og matvælaframleiðslu okkar Íslendinga, en nú erum við sjálfkrafa að kasta þeim verðmæta markaði fyrir róða. Ég hef frá upphafi mótmælt þeirri afstöðu ríkisstjórnar Íslands að vera í slagtogi með Evrópusambandinu og fleiri þjóðum í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Þær staðföstu þjóðir sem við fylgjum eins og skugginn hafa ekki lagt mikið undir í viðskiptaþvingunum sínum gagnvart Rússlandi og heildaráhrif aðgerðanna varla mælanlegar í þeirra efnahag, en við leggjum verðmætan markað matvælaframleiðslu þjóðarinnar undir og milljarða laun fiskvinnslufólksins og sjómanna tapast. Þess vegna er annar mikilvægasti markaður okkar fyrir frystar loðnuafurðir lokaður í upphafi loðnuvertíðar. Er ekki nægjanlegt að sjómenn og útgerðin og þjóðarbúið búi við óútreiknanlega náttúru sem í senn eykur og skerðir tekjumöguleika þeirra eftir duttlungum sem enginn ræður við?

Það kemur mér á óvart að vinstri blokkin í þinginu standi heil og óskipt að því að sjómenn og fiskverkafólk tapi 2.500 milljónum í töpuðum launatekjum vegna samflots við Evrópusambandið í viðskiptabanni sem engum árangri skilar.

Virðulegi forseti. Umræðan er stundum einkennileg. Hv. þm. Birgitta Jónsdóttir hefur ekki úr háum söðli að detta í þessari umræðu frekar en áður. Ummæli hennar í kvöldfréttum sjónvarpsins 11. janúar síðastliðinn þar sem fjallað var um viðskiptabannið segir meira um þingmanninn en þá þingmenn sem hún atar auri og lygum með því, en því miður (Gripið fram í.) eru slík vinnubrögð daglegt brauð hjá hv. þm. (Gripið fram í.) Birgittu Jónsdóttur. (Gripið fram í: Þetta er nú einum of.) Með leyfi forseta vitna ég í orð þingmannsins:

„Ég verð að segja að það er nú þannig að margir af þeim þingmönnum sem hafa tekið undir með málflutningi sjávarútvegsfyrirtækjanna hafa þegið gríðarlega háar fjárhæðir frá þessum sömu fyrirtækjum í sínum prófkjörum þannig að ég verð nú bara að setja svolítinn fyrirvara við þetta allt saman. Ég tel málflutning og rök þau sem hafa komið fram frá utanríkisráðherra vera skynsamleg.“

Svona ummæli eru auðvitað ekki svaraverð en segja allt um hver staða (Forseti hringir.) Pírata er og hvar hv. þm. Birgitta Jónsdóttir er (Forseti hringir.) stödd í þessari umræðu. (Gripið fram í.)


Tengd mál

Efnisorð er vísa í ræðuna