145. löggjafarþing — 65. fundur,  21. jan. 2016.

reglugerð um árstíðabundna vöru.

[10:40]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Hér er tekið upp stórmál, enn eitt dæmið um það hve langt við höfum oft og tíðum viljað ganga við að handstýra þjóðfélaginu. Það skal ekki keyptur páskabjór nema það séu páskar. Það skal ekki drukkinn jólabjór nema það séu jól fram undan og ekki of lengi eftir að jólahátíðinni lýkur. Að sjálfsögðu eru þetta reglur sem ætti að taka til endurskoðunar, sem og þær hvar megi selja bjórinn. Það er alveg hárrétt að mikil sóun er í því fólgin þegar verið er að taka vöru, sem að öllu leyti er í lagi með, og hella henni niður vegna þess að merkingarnar stangast á við dagatalið. Þetta er auðvitað sóun, það er alveg hárrétt.