145. löggjafarþing — 66. fundur,  25. jan. 2016.

ráðstöfun eigna á Stjórnarráðsreit.

[15:20]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Þær ályktanir sem hv. þingmaður hrapar hér að eru alrangar. Að sjálfsögðu hefur verið haft samráð við fjármálaráðuneytið um húsnæðismál Stjórnarráðsins á undanförnum árum og einnig núna. Ég ítreka bara það sem ég sagði áðan, að komi til þess að gerður verði einhvers konar samningur þá fer það að sjálfsögðu í gegnum þá aðila sem eru til þess bærir. Þannig að ályktanir hv. þingmanns eru alrangar.