145. löggjafarþing — 68. fundur,  27. jan. 2016.

þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.

156. mál
[15:37]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mun sitja hjá við atkvæðagreiðslu um þessa grein svo og aðrar greinar við þetta frumvarp vegna þess að ég tel að það eigi einfaldlega að vera frjálst að nota fánann og með því eigi að fylgjast þannig að þetta gengur ekki nógu langt í frjálsræðisátt að mínu mati. Ég sit því hjá.