145. löggjafarþing — 73. fundur,  3. feb. 2016.

áhættumat vegna ferðamennsku.

326. mál
[17:12]
Horfa

Flm. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um áhættumat vegna ferðamennsku. Fyrsti flutningsmaður er sú sem hér stendur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, og aðrir flutningsmenn eru hv. þingmenn Steingrímur J. Sigfússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Jón Gunnarsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Róbert Marshall, Katrín Júlíusdóttir og Þorsteinn Sæmundsson.

Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að koma því til leiðar að ríkislögreglustjóri geri áhættumat fyrir Ísland með tilliti til ferðamennsku, eftir atvikum í samstarfi við Ferðamálastofu, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umhverfisstofnun og aðra aðila á vettvangi ferðamála, öryggis- og björgunarmála og náttúruverndar. Í framhaldi af því verði kannað og metið hvort ástæða þyki til að setja sérstakar reglur um ferðir á þeim svæðum sem falla í efsta áhættuflokkinn.“

Greinargerð með tillögunni fylgir hér.

Þingsályktunartillagan sem hér um ræðir var áður flutt á 143. löggjafarþingi og stóðu fulltrúar allra stjórnmálaflokka á þingi að baki henni. Tillagan var tekin til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd sem sendi út umsagnarbeiðnir hennar vegna. Bárust tólf umsagnir frá ýmsum aðilum, nokkuð sundurleitar að efni, en allar til marks um það að málið sem til meðferðar er þarfnast úrlausnar fyrr en síðar. Ekki tókst að afgreiða þingmálið á 143. löggjafarþingi og var það því lagt fram að nýju á 144. löggjafarþingi en ekki var mælt fyrir því þá. Sökum þess að ekkert hefur gerst sem dregur úr mikilvægi þess að efla öryggi í ferðamennsku er málið lagt fyrir enn á ný af þingmönnum úr öllum stjórnmálahreyfingum á Alþingi eins og við fyrri flutning málsins. Málinu fylgir upphafleg greinargerð, óbreytt. — Ætla ég að fara yfir hana að hluta, þá greinargerð sem fylgir með.

„Markmið þessarar þingsályktunartillögu er að fækka slysum og óhöppum ferðamanna í óbyggðum og utan alfaraleiða. Með því yrði dregið úr þjáningum einstaklinga af völdum slysfara og hrakninga og kostnaði samfélags og einstaklinga vegna leitar- og björgunarstarfa.

Sem kunnugt er hefur erlendum ferðamönnum á Íslandi fjölgað mikið á undanförnum árum og á sama tíma hefur teygst nokkuð úr hinum hefðbundna ferðamannatíma sumarmánaðanna inn á haust og vetur. Íslendingar ferðast einnig um landið á öllum árstímum. Mest er um óbyggðaferðir að sumarlagi en þær tíðkast einnig á öðrum tímum árs.

Á 140. löggjafarþingi og einnig á 141. löggjafarþingi var flutt frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 73/2005, um skipan ferðamála, með síðari breytingum, sem ekki varð að lögum. Var stjórnarfrumvarp þetta samið í iðnaðarráðuneytinu og tók mið af tillögum nefndar sem þáverandi iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, skipaði árið 2010 til að gera tillögur að endurskoðun laganna. Lagðar voru til breytingar á stjórnsýslu ferðamála annars vegar og hins vegar breytingar sem lúta að öryggi ferðafólks og eftirliti með þeim aðilum sem bjóða fram og annast ferðir um Ísland. Um öryggismálaþáttinn segir m.a. í athugasemdum við lagafrumvarpið:

„Á undanförnum árum hafa orðið nokkur alvarleg slys á ferðafólki hér á landi. Til að bregðast við þessu er talið æskilegt að gera auknar öryggiskröfur til þeirra aðila sem bjóða upp á ferðir hér á landi. Þannig eru í frumvarpinu ákvæði sem kveða á um skyldur aðila sem bjóða upp á ferðir innan lands til að útbúa og skila inn til Ferðamálastofu öryggisáætlun þar sem fram kemur mat á áhættu viðkomandi ferðar og lýsing á því hvernig viðkomandi aðili hyggist bregðast við beri vá að höndum í ferðinni.“

Og enn fremur segir um þetta: „Nái frumvarpið fram að ganga mun það auka öryggi ferðamanna sem fara í skipulagðar ferðir innan lands þar sem kröfur til þeirra sem hafa heimild til að bjóða upp á slíkar ferðir verða auknar. Í einhverjum tilvikum munu breytingarnar hafa það í för með sér að ferðaskipuleggjendur og aðrir leyfishafar þurfi að meta áhættu af ferðum sínum og útbúa viðeigandi viðbragðsáætlun en margir leyfishafar hafa þegar útbúið slíkar áætlanir.“

Eins og framangreind tilvitnun ber með sér gerðu lagabreytingarnar, sem frumvarp iðnaðarráðherra boðaði, ráð fyrir að skipuleggjendur ferða tækju á sig alla ábyrgð á áhættumati vegna þeirra. Má segja að sú hugsun sé í samræmi við almannarétt, þ.e. þann rétt „sem almenningi er áskilinn til frjálsra afnota af landi og landsgæðum, til farar um land og vötn o.fl. samkvæmt ákvæðum í náttúruverndarlögum.“ Almannarétturinn leiðir það af sér að fólki er heimil för um landið og ber hver einstaklingur ábyrgð á för sinni og þeim afleiðingum sem af henni kunna að hljótast. Rétturinn til frjálsrar farar um land og vötn er vissulega einkar mikilvægur og ekki er stefnt að því með þessari þingsályktunartillögu að afnema hann eða skerða, og í sjálfu sér ekki heldur að hindra fólk í að tefla í tvísýnu á ferðum sínum, heldur aðeins að vitneskja um áhættuna liggi fyrir og að nauðsynlegar varúðarráðstafanir verði gerðar. Það er réttmætt og eðlilegt að skipuleggjendur ferða annist áhættumat vegna ferða sinna og þeirra athafna sem þeim kunna að fylgja, og geta ráðið úrslitum um það hvort ferð telst áhættusöm eða ekki, standi straum af kostnaði við þetta og sjái um að kynna niðurstöðurnar fyrir viðskiptavinum sínum.

Eftir að ljóst varð að fyrrnefnt frumvarp iðnaðarráðherra um breytingu á lögum um skipan ferðamála yrði ekki að lögum gaf Ferðamálastofa út í maí 2013 leiðbeinandi reglur um öryggismál ferðaskipuleggjenda og ferðaskrifstofa. Ábyrgð á framkvæmd öryggismála ferðafólks er fyrst og fremst hjá ferðaþjónustuaðilum samkvæmt þessum reglum enda voru þær upphaflega samdar sem reglugerð um öryggismál ferðaþjónustunnar í tengslum við frumvarp iðnaðarráðherra. Samkvæmt reglunum eru ferðaþjónustuaðilar hvattir til að gera öryggisáætlun, útbúa skriflegt áhættumat fyrir hverja ferð, setja skriflegar verklagsreglur um framkvæmd þjónustunnar, útbúa viðbragðsáætlun í samræmi við áhættumat og halda atvikaskýrslu um öll óhöpp, slys og atvik sem hefðu getað leitt til óhapps eða slyss. Þá er lýst þeim kröfum sem gera skal til menntunar og þjálfunar leiðsögumanna í mismunandi ferðum og við mismunandi staðhætti. Í fylgiskjölum reglnanna eru lýsingar á þeim námskeiðum sem leiðsögumenn og fararstjórar skulu hafa lokið til að geta tekið að sér leiðsögn í hinum ýmsu tegundum ferða. Gefur þetta nokkra hugmynd um þær ráðstafanir sem helst er talið koma til greina að beita til að auka öryggi ferðafólks í skipulögðum ferðum hér á landi.

Með tilliti til hnattstöðu Íslands, náttúrufars og veðurlags og þeirrar staðreyndar að talsvert er um slys á ferðafólki hér á landi og kostnaðar- og áhættusama leitar- og björgunarleiðangra í óbyggðum virðist ærin ástæða til þess að gert verði áhættumat fyrir ferðir í óbyggðum Íslands þar sem helstu áhættuþættir við slíkar ferðir verði dregnir fram og metnir. Eins og vikið er að í tillögugreininni getur áhættumatið leitt til þess að settar verði reglur um ferðir á þau svæði sem falla í efsta áhættuflokkinn og þær bundnar tilteknum skilyrðum. Slíkar reglur eru sums staðar í gildi þar sem aðstæður krefjast þess, svo sem í víðáttumiklum óbyggðum á Grænlandi og á Svalbarða þar sem ríkir óblítt og rysjótt veðurfar, langt er til byggðra bóla og náttúrufar er í senn hrikalegt og viðkvæmt fyrir átroðningi.

Ferðamönnum, sem koma til Svalbarða og ætla sér að fara þar um utan byggðra bóla, ber að tilkynna sýslumannsembættinu á Svalbarða um ferðir sínar og sýna fram á tryggingu.“

Mig langar í lokin að vísa til blaðagreinar sem var skrifuð núna á dögunum, 24. janúar 2016. Árni Tryggvason jöklaleiðsögumaður ritaði viðamikla grein og fyrirsögn hennar er: Er ferðamönnum fórnandi?

Að mati Árna Tryggvasonar stefna ferðaþjónustufyrirtæki viðskiptavinum sínum í hættu með algjörlega óundirbúnum jöklaferðum.

Hann segir meðal annars, með leyfi forseta:

„Mörg fyrirtæki í greininni leggja einnig mikinn metnað í þjálfun starfsfólks, öryggisstaðla og viðbragðsáætlanir. Vakinn, sem er gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, er leiðarljós þessara fyrirtækja við skipulagningu um öryggisviðmið í ferðum þeirra. Flest metnaðarfyllstu fyrirtækin innan ferðaþjónustunnar eru þátttakendur í Vakanum og hópur fyrirtækja og félaga er í úttektarferli til að uppfylla skilyrði til þess að verða þar fullgild.

[…] Einnig hefur Ferðamálastofa gefið út „Leiðbeinandi reglur um öryggismál ferðaskipuleggjenda og ferðaskrifstofa“.“

Hann segir einnig:

„Hér höfum við því næg viðmið til að öryggi okkar verðmætu farþega sé sem allra mest, sem auðvitað er sjálfsagt þar sem greinin er viðkvæm og má ekki við áföllum vegna nokkurs konar vanrækslu.

Því hafa ábyrg ferðaþjónustufyrirtæki sammælst um viðmið varðandi öryggi sem eiga að duga til að menn viti hvað óhætt sé að gera. Þá er skynsemi nauðsynleg viðbót til að hlutirnir séu í lagi.“

En svo segir hann:

„Nú er ég þá að koma að kjarna málsins, en það eru þau fyrirtæki í ferðaþjónustu sem hunsa allar sjálfsagðar öryggisráðstafanir í fjölda ferða þrátt fyrir að allt líti vel út á yfirborðinu. Þessi fyrirtæki eru yfirleitt með góða og vandaða bíla og veita góða þjónustu. Jafnvel eru góðir ökuleiðsögumenn í þjónustu þeirra og öruggir bílstjórar sjá um aksturinn.

Tilefni þess að ég ákvað að tjá mig um þessi mál er sú hætta sem allt of mörg þessara fyrirtækja eru að stefna viðskiptavinum sínum í með algjörlega óundirbúnum jöklaferðum.“

Hann vekur athygli á mörgu undir þessum fyrirsögnum: „Hvað þarf til að tryggja öryggið?“ „Á hættusvæði án búnaðar eða þjálfunar“. Menn eru auðvitað að stefna farþegum sínum í slíkum ferðum í mikla hættu ef menn eru ekki undirbúnir sem skyldi. Ein fyrirsögnin er: „Með ferðamenn á sprungusvæði“. Við vitum, eins og jöklarnir okkar eru á ákveðnum árstímum, að þeir geta verið gífurlega hættulegir yfirferðar og ekki fyrir óvana að fara um. Áhættumat á mjög vel við að gera á þeim svæðum, á jöklunum þar sem auðvelt er að villast og farið er á hættuleg svæði þar sem sprungur eru og mikil hreyfing er á jöklunum. Greinarhöfundur vísar til þess að leiðsögumaður hafi villst í jöklaferð og fyrirtækið hafi verið dæmt vegna slyss í áhættuferð.

Ég vildi vísa til þessarar greinar Árna Tryggvasonar jöklaleiðsögumanns til stuðnings því að mér finnst þessi þingsályktunartillaga vera mjög brýn og eiga vel við. Þetta er í þriðja skiptið sem hún er lögð fram af þingmönnum úr öllum flokkum og ég treysti á að hún fáist afgreidd því að það er löngu orðið tímabært.