145. löggjafarþing — 78. fundur,  18. feb. 2016.

fullgilding stofnsamnings um Innviðafjárfestingabanka Asíu.

436. mál
[13:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti og undir það ritar sú sem hér stendur ásamt hv. þingmönnum Silju Dögg Gunnarsdóttur, Vilhjálmi Bjarnasyni, Haraldi Benediktssyni og Þorsteini Sæmundssyni.

Þetta er, eins og komið hefur fram, nefndarálit um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu stofnsamnings um Innviðafjárfestingabanka Asíu. Nefndin hefur fjallað um málið og fékk strax í upphafi á sinn fund Sigurð H. Helgason og Lilju Sturludóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Maríu Erlu Marelsdóttur og Kristján Andra Stefánsson frá utanríkisráðuneytinu og síðar komu á fund nefndarinnar eftir umsagnir Jón Sigurgeirsson og Lilja Alfreðsdóttir frá Seðlabanka Íslands.

Þá höfðu nefndinni borist umsagnir um málið. Nefndin sendi út beiðni um umsagnir til tólf aðila; til Alþýðusambands Íslands, til Amnesty International, til Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, Fjármálaeftirlitsins, Íslandsstofu, Rauða kross Íslands, ríkisskattstjóra, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fjármálafyrirtækja og Seðlabanka Íslands. Allir þessir tólf aðilar fengu beiðni um umsagnir. Einungis tvær umsagnir bárust og þar af var aðeins önnur efnisleg, frá Seðlabanka Íslands, þess vegna komu þeir gestir á fund nefndarinnar. Einnig kom bréf frá Félagi Sameinuðu þjóðanna sem lýsti því yfir að þeir hefðu ekki skoðun á málinu og ekki forsendur til þess. Síðan kom efnislegt bréf frá Seðlabanka Íslands þar sem farið var yfir málið og þeirra skoðanir á því reifaðar þar sem talað er um að stofnaðildin sé talin geta eflt viðskiptalega stöðu Íslands í Asíu og Kyrrahafi o.s.frv., og þess vegna fékk nefndin á sinn fund fulltrúa Seðlabankans, þ.e. Jón Sigurgeirsson og Lilju Alfreðsdóttur.

Með þingsályktunartillögunni eins og þingheimur þekkir er leitað eftir heimild Alþingis til að fullgilda stofnsamning Innviðafjárfestingabanka Asíu. Ríkisstjórn Íslands ákvað í mars 2015, að tillögu fjármála- og efnahagsráðherra og utanríkisráðherra, að Ísland mundi sækjast eftir því að vera meðal stofnaðila að Innviðafjárfestingabanka Asíu. Stofnskjöl bankans voru formlega undirrituð af hálfu Íslands og fleiri ríkja 29. júní 2015 í Peking.

Fram kemur í athugasemdum við þingsályktunartillöguna að Innviðafjárfestingabanki Asíu sé fjölþjóðlegur þróunarbanki sem muni styðja við aðgerðir til að efla innviði í Asíu sem sé sá hluti heimsins þar sem hagvöxtur sé hvað mestur. Þessi þróun kalli meðal annars á stóraukna uppbyggingu innviða í Asíu til að auðvelda flæði vöru og þjónustu innan Asíu og milli Asíu og fjarlægra svæða, svo sem Evrópu, Miðausturlanda og Afríku. Í stofnsamningi bankans kemur fram að tilgangur hans sé að stuðla að sjálfbærri efnahagsþróun, auka verðmæti og bæta innviðatengingar í Asíu með fjárfestingum í innviðum og öðrum virðisaukandi geirum. Auk þess muni bankinn stuðla að svæðisbundinni samvinnu og samstarfi til að taka á áskorunum í þróunarmálum, með því að vinna í nánu samstarfi við aðrar fjölþjóðlegar og tvíhliða þróunarsamvinnustofnanir.

Þá kemur einnig fram, í athugasemdum við tillöguna, að heildarskuldbinding Íslands varðandi stofnfé bankans nemi um 17,6 milljónum bandaríkjadala eða 0,0179% af stofnfé sem samsvarar um 2,3 milljörðum kr. Eins og þingheimur þekkir er fimmtungur stofnfjárins innborgaður en fjórir fimmtu hlutar stofnfjárins innkallanlegt stofnfé.

Flest Evrópuríki, þar með talin öll norrænu ríkin, hafa unnið að stofnun bankans ásamt ríkjum Asíu. Aðild Íslands að innviðafjárfestingabankanum mun styrkja enn frekar góð samskipti Íslands og Asíuríkja og styðja við nýja vaxtarbrodda á viðskiptasviðinu sem getur þýtt aukin tækifæri fyrir íslenskt viðskiptalíf í Asíu, auk þess að gera Ísland sýnilegra á stærsta vaxtarsvæði heimsins.

Meiri hlutinn í utanríkismálanefnd styður því aðild Íslands að innviðafjárfestingabankanum og leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Eins og áður sagði er þetta undirritað af þeirri sem hér stendur og hv. þingmönnum Silju Dögg Gunnarsdóttur, Vilhjálmi Bjarnasyni, Haraldi Benediktssyni og Þorsteini Sæmundssyni.