145. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2016.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hafa tvö bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 765, um reglur um starfsemi fasteignafélaga, frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur og við fyrirspurn á þskj. 786, um nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

Forseta hefur einnig borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 783, um nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.