145. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2016.

fullgilding stofnsamnings um Innviðafjárfestingabanka Asíu.

436. mál
[14:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegi forseti. Fátt felur í sér meiri áhættu en rekstur banka. Þeir Íslendingar sem hafa ekki lært það af árinu 2008 ættu kannski að hugleiða að reyna að draga einhvern lærdóm af ástandinu eins og það er í dag og ekki síst í Asíu.

Í öllu falli tel ég það ekki hlutverk ríkisins að standa í bankarekstri, hvorki hér heima né að heiman. Það er þess vegna sem ég greiði atkvæði gegn þessu máli.