145. löggjafarþing — 81. fundur,  29. feb. 2016.

rannsókn kjörbréfs.

[15:03]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Birgir Ármannsson) (S):

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forseta hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komið saman til að fara yfir kjörbréf Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur frá landskjörstjórn. Varð samhljóða niðurstaða nefndarinnar að gera ekki athugasemdir við kjörbréfið.