145. löggjafarþing — 84. fundur,  2. mars 2016.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:01]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Með bréfi, dagsettu 24. febrúar sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um tvær skýrslur Ríkisendurskoðunar, þ.e. skýrslu um fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins og skýrslu um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga.