145. löggjafarþing — 84. fundur,  2. mars 2016.

fullnusta refsinga.

332. mál
[16:12]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er tillaga um að um símtöl og bréfaskrif ríki einnig trúnaður milli fanga og kjörinna fulltrúa. Þetta er tillaga sem ekki náðist samhugur um meðal fólks í minni hlutanum þannig að ég legg hana fram einn og sjálfur og hef nú gert grein fyrir henni.