145. löggjafarþing — 85. fundur,  9. mars 2016.

mannabreytingar í nefndum.

[15:11]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta hefur borist erindi, dagsett 7. mars, frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins um mannaskipti í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa:

Valgerður Gunnarsdóttir tekur sæti Unnar Brár Konráðsdóttur sem aðalmaður í Íslandsdeild Evrópuráðsins.

Unnur Brá Konráðsdóttir tekur sæti Brynjars Níelssonar sem varamaður í Íslandsdeild Evrópuráðsins.

Brynjar Níelsson tekur sæti Valgerðar Gunnarsdóttur sem aðalmaður í Norðurlandaráði.

Þessi breyting skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.