145. löggjafarþing — 86. fundur,  10. mars 2016.

helgidagafriður.

575. mál
[17:18]
Horfa

Flm. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um brottfall laga um helgidagafrið. Flutningsmenn eru sá sem hér stendur, Helgi Hrafn Gunnarsson, og hv. þingmenn Birgitta Jónsdóttir, Guðmundur Steingrímsson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Frumvarpið er ekki flókið. 1. gr. er svohljóðandi:

Lög um helgidagafrið, nr. 32/1997, falla brott.

Í 3. gr. er eftirfarandi texti, með leyfi forseta:

„Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971: 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:

Frídagar eru sunnudagar, aðfangadagur jóla frá kl. 13, jóladagur, annar dagur jóla, gamlársdagur frá kl. 13, nýársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar dagur páska, uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar dagur hvítasunnu, sumardagurinn fyrsti, 1. maí og 17. júní.“

Með þessu frumvarpi er lagt til að lög um helgidagafrið falli brott. Markmið laganna er að vernda helgihald og tryggja frið, næði og hvíld og takmarka afþreyingu fólks á helgidögum þjóðkirkjunnar. Flutningsmenn sjá ekki ástæðu til að takmarka frelsi fólks með lögum þannig að það varði sektum að standa að til dæmis bingói, happdrætti, dansleikjum eða öðrum samkomum á helgidögum þjóðkirkjunnar. Frítökuréttur og hvíldartími er tryggður í kjarasamningum en til að réttur launafólks til frídaga eigi styrka lagastoð er lögð til orðalagsbreyting á 6. gr. laga um 40 stunda vinnuviku þannig að í staðinn fyrir að þess sé getið að helgidagar þjóðkirkjunnar séu frídagar verði umræddir dagar taldir upp í ákvæðinu sem lögbundnir frídagar og er það í samræmi við upptalningu mína hér áðan.

Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum síðustu ár og áratugi. Samsetning íbúa hefur til dæmis breyst mikið hvað varðar trúarbrögð og lífsskoðanir. Þá hefur straumur ferðamanna til landsins aukist mjög, ekki síst um jól og páska. Því skýtur skökku við að á sama tíma og Ísland er markaðssett sem áfangastaður um hátíðirnar skuli flestir veitingastaðir og búðir lokuð á heilögustu dögunum. Af þeim sökum hafa kröfur um breytingar á helgidagalöggjöfinni orðið háværari undanfarin missiri, enda miklir hagsmunir í húfi. Þannig hafa forsvarsmenn í verslun og þjónustu lýst því opinberlega yfir að þeir telji að endurskoða þurfi lög um helgidagafrið og hafa þau verið kölluð barn síns tíma. Gerð er sú krafa að atvinnurekendur fái að ráða því sjálfir hvort þeir hafa opið á hátíðisdögum, en þó í samráði við starfsmenn og með hliðsjón af ákvæðum kjarasamninga um hvíldartíma og álagsgreiðslur. Skoðanir þessar eru ekki einangraðar við hagsmunaaðila heldur hafa þær einnig heyrst úr röðum þjóðkirkjunnar. Bent hefur verið á að lögin taki ekki mið af samfélaginu. Eins hefur verið bent á að þjóðkirkjan stundi ekki neitt eftirlit með því hvort lögunum sé fylgt og ljóst sé að ekki hafi verið farið eftir lögunum í hvívetna. Flutningsmenn telja góða samstöðu í samfélaginu um að breyta þurfi helgidagalöggjöfinni.

Í ljósi fyrrnefndra breytinga á samfélaginu hvað varðar trúar- og lífsskoðanir fólks og ekki síður í ljósi stóraukins ferðamannastraums til landsins telja flutningsmenn lög um helgidagafrið vera úreltan lagabókstaf og að löngu sé orðið tímabært að nútímavæða fyrirkomulagið. Tilgangur laga um helgidagafrið er að tryggja að fólk sem vill stunda helgihald á sunnudögum og helgidögum fái frið til þess. Flutningsmenn telja að ástæðulaust sé að takmarka með lögum frelsi fólks á tilteknum dögum til þess eins að annað fólk fái þá frið til að stunda helgihald. Það hlýtur að stríða gegn því frjálsa samfélagi sem við viljum hafa í hávegum. Að auki gerir stóraukinn straumur ferðamanna það að verkum að nauðsynlegra er nú en fyrr að gera breytingar á helgidagalöggjöfinni. Frítökuréttur og hvíldartími er þegar tryggður í kjarasamningum en eins og áður kom fram leggja flutningsmenn til orðalagsbreytingar á lögum um 40 stunda vinnuviku til að tryggja rétt til frídaga enn frekar.

Virðulegi forseti. Mér þykir rétt að árétta að markmiðið með þessu frumvarpi er að veita frelsi gegn banni sem er til staðar sökum laga um helgidagafrið, enda álít ég að vinnuréttindi og réttindi starfsfólks beri að tryggja með kjarasamningum og lögum um 40 stunda vinnuviku, ekki með lögum sem eru sérstaklega hugsuð út frá helgidagafriði. Vissulega telja flutningsmenn þessa frumvarps óþarfa að banna bingó og ýmsa hluti á þessum dögum til að tryggja réttindi starfsfólks. Miklu frekar eiga þau réttindi heima á öðrum vettvangi, enda er í frumvarpinu gerð grein fyrir því.

Einhvers misskilnings hefur gætt um þetta, og kannski eðlilega, en þá vil ég halda því til haga að ef í þessu frumvarpi leynast einhverjir gallar þegar kemur að réttindum starfsfólks til hvíldar, vinnuálags, vinnutíma eða einhvers því um líks er algjörlega sjálfsagt að bregðast við því við umfjöllun nefndar á frumvarpinu. Munu flutningsmenn þá að sjálfsögðu skoða þau mál með opnum hug, enda er markmiðið hér að afnema bann fyrst og fremst og fella burt lög um helgidagafrið. Markmiðið er ekki í sjálfu sér að hafa áhrif á réttindi starfsfólks.

Að þessu sögðu lýk ég máli mínu, virðulegi forseti, og hlakka til að sjá hvernig fer með málið í nefnd.