145. löggjafarþing — 92. fundur,  4. apr. 2016.

varamenn taka þingsæti.

[15:11]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að 1. þm. Norðvest., Gunnar Bragi Sveinsson, verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson.

Sigurður Páll Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá 3. þm. Suðvest., Ragnheiði Ríkharðsdóttur, um að hún geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Óli Björn Kárason.

Óli Björn Kárason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.