145. löggjafarþing — 92. fundur,  4. apr. 2016.

skýringar forsætisráðherra á aflandsfélagi.

[17:15]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Allmargir hv. þingmenn eru enn á mælendaskrá. Það er ekki svo að forseta hafi yfirsést neinir þingmenn sem hafa beðið hér um orðið eftir því sem hann best veit. Hann reynir að hafa auga á hverjum fingri, fylgjast með og færa bókhald sitt af mikilli nákvæmni.