145. löggjafarþing — 99. fundur,  18. apr. 2016.

varamenn taka þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 7. þm. Norðvest., Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Anna María Elíasdóttir, en 1. varamaður í kjördæminu hefur boðað forföll.

Anna María Elíasdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að 8. þm. Suðvest., Ögmundur Jónasson, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Rósa Björk Brynjólfsdóttir.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur tekið sæti áður á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.