145. löggjafarþing — 103. fundur,  28. apr. 2016.

samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu 2016.

640. mál
[13:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2016 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 22. og 31. desember 2015.

Samningur þessi kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvor annars á árinu 2016. Hann er óbreyttur frá fyrra ári.

Samkvæmt samningnum fá færeysk skip heimild til að veiða 30 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu á loðnuvertíðinni 2016–2017 að því tilskildu að leyfilegur heildarafli verði 500 þús. lestir, að öðrum kosti nemur hlutdeild færeyskra skipa 5% af honum.

Færeyskum skipum er sömuleiðis heimilt á loðnuvertíðinni 2016–2017 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu úr veiðiheimildum sem eru fengnar með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.

Samningurinn gerir einnig ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2016.

Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af Hjaltlandseyjasíld innan færeyskrar lögsögu á árinu 2016

Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 31. desember 2015 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.

Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá árinu 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2016. Heildarafli þorsks verður þó ekki meiri en 1.900 lestir, heildarafli keilu ekki meiri en 650 lestir og engar veiðar eru heimilaðar á lúðu eða grálúðu.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að tillögu þessari verði vísað til síðari umræðu og hv. utanríkismálanefndar.