almennar íbúðir.
Virðulegur forseti. Við göngum hér til atkvæða eftir 2. umr. um frumvarp til laga um almennar íbúðir. Frumvarpinu fylgja töluverðar breytingar, en eins og hér hefur komið fram þá er meginmarkmið frumvarpsins að tryggja öruggt leiguhúsnæði fyrir þá sem eru í tekjulægstu hópunum. Þetta frumvarp er hluti af forsendum kjarasamninga. Þess vegna, virðulegur forseti, hefur velferðarnefnd öll staðið saman að þeim breytingum sem hér eru lagðar til og ég vil taka undir þakkir til samnefndarmanna í velferðarnefnd. Það þurftu allir að gefa eftir af sínu. En málamiðlun sýnir að hægt er að vinna saman, komast að niðurstöðu sem í þessu tilviki, virðulegur forseti, verður vonandi í náinni framtíð til hagsbóta fyrir þá sem þetta frumvarp á að vinna fyrir. Við sjálfstæðismenn munum standa að þeim breytingartillögum sem hér eru lagðar fram.