145. löggjafarþing — 112. fundur,  18. maí 2016.

mannabreyting í nefnd.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta hefur borist erindi, dagsett í dag, frá þingflokki Framsóknarflokksins um að Karl Garðarsson verði varamaður í allsherjar- og menntamálanefnd, samanber 16. gr. þingskapa um mannaskipti í nefndum.

Þessi breyting skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.