145. löggjafarþing — 114. fundur,  22. maí 2016.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.

777. mál
[20:32]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég kem hingað fyrst og fremst til að segja að ég er sammála hv. þingmanni. Það er ávallt tilhneiging til að safna upplýsingum, oft umfram efni og ástæður. Það er full ástæða til að fara vel yfir það þegar við setjum mikilvæg lög.

Ég ítreka þann skilning minn að ég tel að þessar heimildir eigi eingöngu við um framkvæmd þessara laga en þó hefði verið gott að fara betur yfir það á vettvangi nefndarinnar.