145. löggjafarþing — 114. fundur,  22. maí 2016.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.

777. mál
[23:01]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Eins og ég fór yfir í nefndaráliti mínu áðan gerum við þingmenn Vinstri grænna ýmsar athugasemdir við þetta mál, hefðum viljað sjá tekið á ýmsum þáttum á borð við vaxtamunarviðskipti og raunverulegt eignarhald á aflandskrónueignum í tengslum við umræðu um þetta mál, fyrir utan að við fengum auðvitað afar stuttan tíma til að fara yfir mjög stórt mál sem varðar hagsmuni þjóðarinnar. Af þessum sökum sem ég fór yfir hér áðan og nefni stuttlega nú munum við sitja hjá við afgreiðslu þessa frumvarps.