skattar og gjöld.
Virðulegur forseti. Það er áhugavert að sjá Samfylkinguna og Vinstri græna á harðahlaupum undan því sjónarmiði sem þau sjálf settu fram þegar þau flæktu tekjuskattskerfið árið 2009 og heimiluðu þar með og liðkuðu til fyrir millitekjuheimilum að fullnýta lægra tekjuskattsþrep, ónýttan hluta, í efra skattþrepið. Þau halda því núna fram að það sé réttlætanlegt að níðast á heimilum með heimilistekjur upp á rúmar 8 millj. kr. og mismuna þeim gagnvart öðrum heimilum sem hafa jafn háar heimilistekjur í þágu tryggingagjaldsins. Ég tel að hér sé komið nýtt slagorð fyrir þessa flokka í næstu kosningabaráttu. Hér eigi að forgangsraða og nota skattkerfið til þess að láta þessi heimili bera uppi lækkun tryggingagjalds. Ég tel það undarlega forgangsröðun af hálfu þessara vinstri flokka (Gripið fram í: Hjá ráðherranum.) og ítreka að þessi aðgerð varðar millitekjufjölskyldur (Forseti hringir.) og heimili í landinu og jafnræði á milli þeirra.