145. löggjafarþing — 125. fundur,  2. júní 2016.

mjólkurfræði.

40. mál
[18:04]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um eflingu náms í mjólkurfræði. Flutningsmaður tillögunnar er hv. þm. Jóhanna María Sigmundsdóttir ásamt fleirum. Tillagan sjálf liggur fyrir á þskj. 40 og er mál nr. 40.

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti og farið yfir umsagnir sem bárust vegna málsins, bæði á yfirstandandi þingi og á fyrra þingi þegar málið var fyrst lagt fram.

Með þingsályktunartillögunni er lagt til að gripið verði til aðgerða sem tryggi að íslenskum nemendum standi til boða að sækja nám í mjólkurfræði. Slíkt nám fer ekki fram hér á landi og hafa íslenskir mjólkurfræðingar því í gegnum tíðina sótt þá menntun annað. Flestir hafa leitað til tiltekins skóla í Danmörku og námið hefur byggst upp á samstarfi Fræðslunefndar mjólkuriðnaðarins hér á landi og þessa tiltekna skóla. Í þeim umsögnum sem nefndinni bárust og í upplýsingum frá gestum kom fram að samstarfið hefði reynst afar vel og eigi stóran þátt í velgengni og styrk íslensks mjólkuriðnaðar. Nú ríkir hins vegar óvissa um framtíð náms í mjólkurfræði, og hefur gert um nokkurn tíma, vegna þess að íslenskir nemendur þurfa sjálfir að standa straum af kostnaði sem hefur stóraukist á undanförnum árum vegna breyttrar umgjarðar varðandi skólagjöld og verknám. Vegna mikilvægis þess að viðhalda og endurnýja þekkingu í mjólkurfræði í landinu og þeirrar staðreyndar að nám í greininni fer ekki fram hér þykir flutningsmönnum þingsályktunartillögunnar nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld grípi til aðgerða. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið.

Fram kom á fundum nefndarinnar að á árunum 1999–2013 hefðu að meðaltali tveir íslenskir mjólkurfræðingar útskrifast á ári, en enginn Íslendingur hefði hafið nám í greininni síðan 2012 svo kunnugt væri, meðalaldur mjólkurfræðinga á Íslandi væri um 50 ár og á næstu tíu árum mundu 14 mjólkurfræðingar hætta störfum sökum aldurs. Nýliðun í greininni er hæg eins og fram er komið og veruleg hætta er á að nýliðun verði minni en þörfin kallar á með ófyrirséðum afleiðingum fyrir íslenskan mjólkuriðnað og ýmsan annan matvælaiðnað þar sem mjólkurfræðingar starfa. Nefndinni hefur verið bent á að nú þegar megi greina áhrif skorts á mjólkurfræðingum í auknu vinnuálagi þeirra sem starfandi eru hér á landi.

Nefndin telur því brýnt að brugðist verði við þeim vanda sem að iðngrein þessari steðjar. Þar sem vænta má að útskrift tveggja til þriggja mjólkurfræðinga á ári dugi til að viðhalda nauðsynlegri þekkingu telur nefndin þjóðhagslega hagkvæmara að ráðuneytið leiti samninga við yfirvöld og skóla erlendis um menntun íslenskra nema frekar en að námið verði með einhverjum hætti stofnsett hér á landi. Leggur nefndin því til breytingu á orðalagi tillögugreinarinnar í samræmi við það.

Þykir nefndinni liggja beint við að ráðuneytið leiti samninga við dönsk yfirvöld og fyrst þann skóla sem samstarf hefur verið við til að tryggja íslenskum nemendum tækifæri til að sækja nám í mjólkurfræði og ráðuneytið hafi við þá vinnu samráð við Fagráð mjólkuriðnaðarins.

Nefndin tekur einnig undir sjónarmið sem fram komu fyrir nefndinni, að auk þjóðhagslegs ávinnings séu jafnréttisrök fyrir því að hið opinbera komi að því að tryggja íslenskum ungmennum sem vilja stunda nám í fámennum iðngreinum tækifæri til að sækja námið utan landsteinanna. Nefndin styður þá þingsályktunartillögu sem er til umfjöllunar en bendir jafnframt á að sams konar vandi steðji að öðrum fámennum iðngreinum, svo sem húsgagnabólstrun, veggfóðrun, dúklagningu, einstökum greinum bakaraiðnar, úrsmíði, eldsmíði og fámennum greinum innan rafiðnar. Nefndin telur því mikilvægt að stuðlað verði að stöðugri endurnýjun í þessum greinum. Beinir nefndin því til ráðuneytisins að leitast verði við að koma á sams konar samningssamböndum við erlend yfirvöld og skóla um nám í öðrum fámennum greinum sem ekki eru kenndar hér á landi.

Að framangreindu virtu leggur nefndin til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með breytingartillögu þar sem í stað orðanna „ráðast í endurskoðun á tilhögun náms“, þ.e. mjólkurfræðináms, komi: leita samninga við erlend yfirvöld og skóla um nám.

Undir nefndarálitið skrifa hv. þingmenn Guðmundur Steingrímsson og Haraldur Einarsson, en þeir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og rita undir samkvæmt reglum þar að lútandi. Síðan eru það hv. þingmenn Unnur Brá Konráðsdóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson og þá rita hv. þingmenn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir undir álitið með fyrirvara um samhengi við aðrar iðngreinar og faglega frumkvæðisskyldu mennta- og menningarmálaráðuneytis.