145. löggjafarþing — 128. fundur,  2. júní 2016.

þingfrestun.

[22:42]
Horfa

forsætisráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 145. löggjafarþings, frá 2. júní 2016 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 15. ágúst 2016.

Gjört á Bessastöðum, 31. maí 2016.

Ólafur Ragnar Grímsson.

 

____________________

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Bréf forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 145. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir störf sín í þágu þjóðar og óska þeim og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.