145. löggjafarþing — 132. fundur,  15. ág. 2016.

framhaldsfundir Alþingis.

[15:03]
Horfa

forsætisráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Forseti Íslands gerir kunnugt:

„Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 15. ágúst 2016 kl. 15.

Gjört í Reykjavík, 9. ágúst 2016.

Guðni Th. Jóhannesson.

_____________________

Sigurður Ingi Jóhannsson.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingfunda að nýju.