145. löggjafarþing — 134. fundur,  17. ág. 2016.

landlæknir og lýðheilsa.

397. mál
[15:41]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði gegn málinu. Ég hef ekki séð nein sannfærandi rök fyrir því að samþykkja þetta mál. Umsagnaraðilar virðast á einu máli um að vera ýmist á móti því eða alla vega alls ekki mæla með því og vara við því sem hér er lagt til að verði gert. Ég greiði því atkvæði gegn málinu.