145. löggjafarþing — 137. fundur,  22. ág. 2016.

hlutafélög o.fl.

664. mál
[16:10]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, einföldun, búsetuskilyrði, af þskj. 1092, mál nr. 664.

Hér er að meginstefnu til um að ræða einföldunarverkefni í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um að einfalda regluverk atvinnulífsins, auka skilvirkni, minnka skrifræði og einfalda samskipti við opinbera aðila um leið og kostnaði er haldið niðri. Unnið hefur verið að því í ráðuneytinu í samvinnu við fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra að endurskoða félagalöggjöfina í þeim tilgangi að einfalda regluverk atvinnulífsins, en tillögurnar í þessu frumvarpi lúta að einföldun regluverks hlutafélaga og einkahlutafélaga. Hér er ekki um að ræða viðamiklar breytingar í því samhengi en það er táknrænt og lýsir vilja ríkisstjórnarinnar í þessum efnum.

Í frumvarpinu er einnig brugðist við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA vegna skilyrða um búsetu og heimilisfesti stofnenda, stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og útibússtjóra hlutafélaga, einkahlutafélaga og sjálfseignarstofnana sem stunda atvinnurekstur. Þá eru í frumvarpinu lagðar til minni háttar breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög sem liður í því að stemma stigu við kennitöluflakki.

Eins og fyrr segir eru breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu þríþættar. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar til einföldunar á lagaumhverfi hlutafélaga og einkahlutafélaga. Í gildandi lögum er gert að skilyrði að meiri hluti stofnenda hlutafélags skuli hafa heimilisfesti hér á landi eða helmingur sé tala stofnenda jöfn. Búsetuskilyrðið gildir ekki um ríkisborgara EES-ríkja, aðildarríkja stofnsamnings EFTA og Færeyinga séu þeir búsettir í framangreindum ríkjum. Aðrir en framangreindir aðilar þurfa undanþágu ráðherra. Slíkar undanþágur eru almennt veittar en auk þess geta erlendir einstaklingar og lögaðilar óháð búsetu og heimilisfesti keypt hluti í félögum sem þegar hafa verið stofnuð.

Einnig er lagt til að skráð félagasamtök og lífeyrissjóðir geti stofnað hlutafélag og einkahlutafélag án þess þurfa til þess undanþágu ráðherra líkt og nú er. Slík undanþága er almennt veitt sé eftir henni óskað en framangreindir aðilar geta auk þess keypt hlut í félögum sem þegar hafa verið stofnuð. Einnig er lagt til að frestur til að senda hlutafélagaskrá tilkynningar verði í nokkrum tilvikum lengdur úr tveimur vikum í fjórar vikur. Er fresturinn þannig færður til samræmis við almennan tímafrest um skráningu og tilkynningar en ákvæði um skráningu er að finna í kafla laga, bæði um hlutafélög og laga um einkahlutafélög. Gerð er tillaga um breytingu á ákvæði um hvað tilkynning um stofnun útibús erlends hlutafélags og einkahlutafélags skuli innihalda og hvaða gögn skulu fylgja slíkri tilkynningu. Þá er lögð til breyting vegna undirbúnings rafrænnar fyrirtækjaskrár en breytingin felur í sér að hlutafélagaskrá geti ákveðið á hvaða formi tilkynningar og fylgiskjöl skuli vera en að sú ákvörðun skuli staðfest af ráðherra sem og að málsmeðferðin skuli vera rafræn. Gert er ráð fyrir að rafræn fyrirtækjaskrá verði tekin í notkun á árinu 2016 og mun hún gera einstaklingum og lögaðilum kleift að skrá hlutafélag og einkahlutafélag með rafrænum hætti.

Á árinu 2014 var lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög, sbr. lög nr. 132/2014, vegna undirbúnings rafrænnar fyrirtækjaskrár en breyting sem hér er lögð til er liður í þeim undirbúningi.

Í öðru lagi eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á skilyrðum um búsetu stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og útibússtjóra hlutafélaga, einkahlutafélaga og sjálfseignarstofnana sem stunda atvinnurekstur þannig að búsetuskilyrðið gildi ekki fyrir ríkisborgara EES-ríkis, aðildarríkis stofnsamnings EFTA og Færeyja sama hvar þeir eru búsettir í heiminum, sem og einstaklinga sem búsettir eru í framangreindum ríkjum. Með breytingunni er brugðist við athugasemdum eftirlitsstofnunar EFTA um að skilyrði um búsetu og heimilisfesti stofnenda, stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og útibússtjóra hlutafélaga, einkahlutafélaga og sjálfseignarstofnana sem stunda atvinnurekstur séu ekki í samræmi við EES-samninginn.

Í þriðja lagi eru lagðar til minni háttar breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög sem liður í því að stemma stigu við kennitöluflakki í atvinnurekstri. Mikilvægt er að gæta meðalhófs við leit að leiðum til úrbóta og að þær aðgerðir sem ráðist verður í séu vel ígrundaðar. Breytingarnar mega ekki vera of íþyngjandi fyrir atvinnulífið eða hindra frumkvöðla- og nýsköpunarstarfsemi. Í vor samþykkti þingið breytingar á lögum um ársreikninga sem m.a. er ætlað að tryggja að hlutafélög og einkahlutafélög skili ársreikningi til opinberrar birtingar. Þeim lögum er ætlað að styðja við baráttuna gegn kennitöluflakki enda er gert ráð fyrir að á hverjum tíma muni nú liggja fyrir betri upplýsingar um fyrirtæki í rekstri. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til, auk þeirra breytinga sem gerðar voru á lögum um ársreikninga, er stigið skref annars vegar til að stemma stigu við kennitöluflakki og hins vegar til að greina megi betur umfang vandans. Þessar breytingar eru:

Í fyrsta lagi er lagt til að ekki verði lengur hægt að greiða hlutafé við stofnun hlutafélags og einkahlutafélags með kröfu á hendur stofnendum félagsins. Þrátt fyrir að slíkt sé ekki algengt þykir rétt að leggja til umrædda breytingu, m.a. sem lið í því að tryggja að hlutafé og verðmæti komi sannarlega inn í hlutafélag við stofnun þess.

Lagt er til að missi stjórnarmenn hlutafélags eða einkahlutafélags hæfi til setu í stjórn og framkvæmdastjórar hæfi til að gegna starfi sínu skuli þeir upplýsa hlutafélagaskrá þar um. Í framkvæmd hefur hlutafélagaskrá afskráð stjórnarmenn og framkvæmdastjóra missi þeir hæfi sitt til setu í stjórn eða til að gegna starfi framkvæmdastjóra og er breytingin lögð til í samræmi við framkvæmdina.

Í þriðja lagi er lagt til að skráning stjórnarmanna og framkvæmdastjóra skuli standa óbreytt í hlutafélagaskrá eftir að héraðsdómari hefur kveðið upp úrskurð um að bú félagsins verði tekið til skipta.

Verði þetta frumvarp að lögum, herra forseti, mun það einfalda tiltekin atriði við stofnun, starfsemi og skráningu hlutafélaga og einkahlutafélaga. Breytingarnar hafa áhrif á samskipti atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og fyrirtækjaskrár, við stofnendur og stjórnendur slíkra félaga, en ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á stjórnsýslu ráðuneytisins og stofnunarinnar eða rekstur svo að nokkru nemi. Hvað rafræna fyrirtækjaskrá varðar er ekki gert ráð fyrir að breytingar kalli á sérstaka innleiðingu eða undirbúning hjá ráðuneytinu eða fyrirtækjaskrá utan þeirrar vinnu sem verið hefur í gangi frá árinu 2013 við undirbúning slíkrar skrár. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Herra forseti. Ég tel að hér sé á ferðinni þýðingarmikið frumvarp sem miðar að því að einfalda lagaumhverfi hlutafélaga og einkahlutafélaga og að koma til móts við athugasemdir eftirlitsstofnunar EFTA vegna fyrrnefndra skilyrða um búsetu og heimilisfesti stofnenda, stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og útibússtjóra hlutafélaga, einkahlutafélaga og sjálfseignarstofnana sem stunda atvinnurekstur. Jafnframt miðar frumvarpið að því að gerðar séu minni háttar breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög sem liður í því að stemma stigu við þeirri meinsemd sem kennitöluflakk er.

Forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar.