145. löggjafarþing — 138. fundur,  23. ág. 2016.

störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Í gær seldi ríkið hlut sinn í fasteignafélaginu Reitum fyrir 3,9 milljarða. Salan er ekki laus við að vekja spurningar. Í ljósi fyrri mála, Borgunarmálsins sérstaklega, og þverrandi umboðs ríkisstjórnarinnar, er rétt að spyrja spurninga um það hvort hér sé ekki farið of geyst í söluna á þessum eignum. Af hverju liggur svona á? Hvers vegna þurfti að selja allan hlutinn í fasteignafélaginu í hvelli meðan spáð er hækkun á fasteignaverði fram í tímann? Væri hægt að ná meiru fyrir hlutinn með því að gera þetta smátt og smátt?

Lindarhvoll sem er fyrirtæki sem stofnað var sérstaklega af ríkinu til að halda utan um fjölda félaga sem voru hluti af stöðugleikaframlaginu sem slitabú föllnu bankanna létu renna til ríkisins á samkvæmt lögum að leggja áherslu á gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni og þar með að leitað sé hæsta mögulega verðs fyrir eignirnar. Ferlið að þessu sinni var undarlega lokað, útboðið var opnað á föstudaginn var og gengið var frá sölu í gær. Það er mikið í húfi að ferlið sé hafið yfir vafa og traust sé á því að allt sé uppi á borðum. Í því ljósi hljótum við að minna á ástæður þess að núverandi ríkisstjórn er að þrotum komin og að boðað er til haustkosninga. Það er einmitt vegna þess að traustið er þorrið og að forustumenn ríkisstjórnarinnar hafa sýslað með sitt persónulega fé í aflandsfélögum og þar með lifað í raun í öðrum veruleika en allur almenningur. Tortryggnin er raunveruleg og hún er á rökum reist. Fjármálaráðherra hlýtur að þurfa að svara því hvort til standi að ljúka við sölu þessara eigna í hálflokuðu ferli. Er hagsmunum ríkissjóðs borgið með því móti? Er verið að selja á hæsta mögulega verði eða er verið að flýta aðgerðum í skjóli nætur í aðdraganda kosninga? Er um að ræða brunaútsölu undir pólitískri tímapressu? Þessum spurningum þarf að svara. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)


Efnisorð er vísa í ræðuna