145. löggjafarþing — 141. fundur,  29. ág. 2016.

staðsetning Lögregluskólans.

[15:26]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður nefnir að Háskóli Íslands fékk einkunn í þessari tilteknu matsnefnd, 128 stig, og Háskólinn á Akureyri 116 og Háskólinn í Reykjavík fékk, ef ég man rétt, 110 stig. Með öðrum orðum er enginn sérstakur munur á í stigagjöfinni, þ.e. grundvallaratriðið er að allir þessir þrír skólar eru greinilega hæfir til að takast á við þetta verkefni.

Það var þess vegna mitt sem ráðherra að taka ákvörðun í málinu og ég hafði að sjálfsögðu hliðsjón af niðurstöðum nefndarinnar. Þar fannst mér vega þyngst að allir skólarnir þrír voru hæfir til að taka á móti þessu námi og greinilega mjög vel hæfir. Þá vóg það líka þungt í ákvörðunartöku minni að þarna var um nýtt nám á háskólastigi að ræða og þar með tækifæri til þess að setja það í skóla eins og Háskólann á Akureyri, styrkja þar með mjög grunnstoðir þess skóla og efla háskólanám á landsbyggðinni, að sjálfsögðu að þeim skilyrðum uppfylltum að viðkomandi skóli uppfyllti allar þær akademísku kröfur sem gerðar eru um slíkt nám. Niðurstaða matsnefndarinnar var eindregið slík að þannig væri staðan, það var alveg augljóst af umsögninni.

Ég tel að með þessu hafi verið tekið stórt skref í þá átt að efla nám á háskólastigi á landsbyggðinni. Við sjáum strax að þær áhyggjur sem m.a. voru reifaðar hér í þingsal um að kannski yrði um að ræða einn nemanda við skólann sökum þess að hann færi norður á Akureyri voru óþarfar því í morgun þegar ég kannaði það voru komnar 109 umsóknir um þetta nám, 52 umsóknir voru frá konum og 57 umsóknir frá körlum. Það er alveg augljóst að þessi ákvörðun hefur mælst vel fyrir hjá þeim sækja um þetta nám.