145. löggjafarþing — 142. fundur,  30. ág. 2016.

störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P):

Virðulegi forseti. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hvernig þingstörfin hafa gengið undanfarnar vikur. Það hefur verið ákveðin tilvistarkreppa á Alþingi undanfarna daga og vikur. Maður veit ekki hvert maður er að stefna í raun og veru. Hérna erum við með hvert málið á fætur öðru, mál sem ýmist koma ný inn eða eiga víst að sofna í nefnd. Ég auglýsi hér með eftir því hver þau eru, þessi mikilvægu forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Er það til dæmis LÍN-frumvarpið sem liggur núna í nefnd og hægt er að gagnrýna endalaust? Þar er um að ræða alveg einstaklega óvönduð vinnubrögð við gerð þess frumvarps þar sem hagsmunaaðilar bjuggu til lög um sjálfa sig, þar sem ekkert samráð var haft við nemendur, við háskóla, við samfélagið heldur rétt svo litið til þeirra og þeim boðið í kurteisisheimsókn. Eða er það búvörusamningur sem verður ræddur seinna í dag? Er það frumvarp um vexti og verðtryggingu, sem er nákvæmlega ekki neitt? Hvenær megum við slútta þessu? Hvenær verður þetta búið? Það er ekkert að gerast hérna. Við stöndum bara hérna og reynum að þykjast halda uppi einhverju þingi.

Ég held að það sé kominn tími til að rjúfa þing. Þetta er orðið frekar sorglegt, frekar dapurlegt. Mæting á nefndarfundi er liggur við ekki nein. Það er í rauninni alveg sturlað að halda þessu áfram með þessu móti. Ég auglýsi eftir því að við fáum lokalista yfir þau mál sem ríkisstjórnin ætlar að klára og hættum þessu dangli. Það hafa allir eitthvað betra að gera en að þykjast vera að sinna einhverjum þingstörfum sem enginn hefur hvort eð er áhuga á að sinna.


Tengd mál