145. löggjafarþing — 153. fundur,  19. sept. 2016.

fullgilding Parísarsamningsins.

858. mál
[18:33]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar bara hér og nú að óska okkur til hamingju með þennan áfanga. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að vera í París þegar þetta samkomulag var gert. Við vorum þar einir sjö íslenskir þingmenn og ég held að fram undan sé okkar að fylgjast með og ganga eftir því að það sem þarna stendur verði okkar bautasteinn í náinni framtíð.